UMI Hotel undir Eyjafjöllum hefur hlotið MICHELIN-lykilinn annað árið í röð. Viðurkenningin kemur samhliða mikilli stækkun á hótelinu en 17 ný herbergi opna þann 23. desember. Eftir stækkunina verður heildarfjöldi herbergja á UMI 45 talsins.
UMI er hluti af íslensku hótelkeðjunni KNOX Hotels og hefur byggt upp sterka stöðu í hágæðagistingu á Suðurlandi. MICHELIN-lykillinn er alþjóðleg viðurkenning sem veitt er hótelum sem skara fram úr í þjónustu, hönnun og einstakri upplifun gesta.

17 ný herbergi
Stækkunin felur í sér 17 ný herbergi í þremur flokkum: Deluxe herbergi, Premium herbergi og Signature svítur. Herbergin eru hönnuð með áherslu á náttúruleg efni, fágaða hönnun og nálægð við íslenska náttúru. Sérstaklega standa upp úr 65 m² Signature svíturnar sem eru með sérverönd, einkagufubaði og heitum potti utandyra.

Þegar er hægt að bóka herbergin og munu þau taka á móti sínum fyrstu gestum þann 23. desember. Lesa meira um nýju herbergin.
Frábær viðurkenning fyrir teymið
„Við erum ótrúlega stolt af því að UMI hafi hlotið MICHELIN-lykilinn annað árið í röð. Þetta er mikil viðurkenning fyrir okkar frábæra teymi og þá upplifun sem það skapar fyrir gesti okkar á hverjum degi. Það er sérstaklega ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu um leið og við göngum inn í nýjan kafla með stækkun UMI. Við getum ekki beðið eftir að sýna gestum okkar nýju hliðina á UMI.“ – Anna Kruczek, hótelstjóri á UMI

Stækkunin er hluti af áframhaldandi vexti KNOX Hotels sem rekur átta hótel og gistihús víðs vegar um Ísland. Þrátt fyrir fleiri herbergi verður áfram lögð áhersla á persónulega þjónustu, gæðahönnun og þá einstöku upplifun sem UMI er þekkt fyrir.











