Suðurströnd Íslands er sköpuð fyrir ævintýri. Jöklar sem þú getur gengið á, íshellar sem ljóma í bláum litum, svartar fjörur og fossar við hverja beygju. Og Umi er staðsett beint í hjarta alls þessa.
Umi Hotel er hluti af TourDesk, svo þú getur bókað fjölbreytt úrval ferða og afþreyingar beint í gegnum okkur. Við höfum valið bestu upplifanirnar á Suðurlandi, margar hverjar í innan við klukkustundar fjarlægð frá hótelinu. Bókaðu á netinu fyrir komu, eða ræddu við okkur meðan á dvölinni stendur. Við erum alltaf boðin og búin að hjálpa þér að skipuleggja ferðina.
Veistu nú þegar hvað þig langar að gera? Farðu beint á síðuna okkar yfir ferðir og afþreyingu og tryggðu þér pláss.
Jöklaganga á Sólheimajökli
Jöklaganga er óviðjafnanlegt ævintýri, og vegna hraðra loftslagsbreytinga er hún aðeins möguleg á örfáum stöðum í heiminum í dag. Sólheimajökull, í um 25 mínútna fjarlægð frá Umi, er einn sá allra besti.
Með brodda á skónum og reyndan leiðsögumann við hlið sér sérðu hvernig náttúruöflin móta ísinn og búa til völundarhús af ísryggjum og djúpum sprungum sem þvera yfirborð jökulsins.
Veldu þægilega kynningargöngu um jökulinn, lengri jöklagöngu eða bættu við ísklifri fyrir meiri áskorun. Þú getur jafnvel farið á kajak á jökullóninu við rætur íssins.

Inn í íshellinn
Djúpt inni í Mýrdalsjökli, undir eldfjallinu Kötlu, tekur ísinn á sig alla mögulega bláa tóna. Jeppaferðir leggja af stað frá Vík og aka yfir svarta sandana að inngangi íshellisins, þar sem leiðsögumaðurinn vísar veginn inn.
Þetta er einn af fáum íshellum á Íslandi sem hægt er að heimsækja allan ársins hring og hápunktur hverrar ferðar um Suðurland.

Vélsleðar og gígbílar
Fyrir meiri hraða er hægt að fara á vélsleða eða gígbíl upp á jökulinn. Eltu spennuna yfir ísbreiðu Mýrdalsjökuls með stórfenglegu útsýni yfir Suðurströndina og hafið fyrir neðan.
Lengra í vestur hefjast daglegar vélsleðaferðir á Langjökli frá kaffihúsinu við Gullfoss. Þetta er frábær kostur ef þú keyrir Gullna hringinn á leiðinni til Umi og vilt bæta einhverju sérstöku við ferðina.

Fjórhjól á svörtum sandi
Kannaðu Sólheimasand á fjórhjóli. Eltu endalausa svarta sandana meðfram ströndinni og út að hinu fræga flugvélarflaki sem hefur hvílt í sandinum síðan 1973. Stuttar hraðferðir eru fullkomnar ef þú hefur aðeins um klukkustund aflögu.
Jeppa- og einkaferðir
Viltu sjá meira á einum degi? Sérsniðnar jeppaferðir og lúxusbílaferðir fara með þig hvert sem hugurinn girnist, með einkaleiðsögumann. Farðu inn í Þórsmörk, á milli þriggja jökla, keyrðu Gullna hringinn eða fylgdu Suðurströndinni alla leið að Kötluíshellinum.

Hraunsýningin í Vík
Upplifðu alvöru bráðið hraun í návígi, án eldfjallsins. Á Icelandic Lava Show í Vík er hraun hitað upp í yfir 1.100°C og hellt inn í herbergið beint fyrir framan þig. Sýningin tekur innan við klukkustund og er fullkomið stopp á rigningardegi.
Dagsferðir lengra í burtu
Frá Umi kemstu einnig auðveldlega á nokkra af þekktustu stöðum Íslands. Taktu ferjuna til Vestmannaeyja, keyrðu Gullna hringinn eða haltu áfram austur að Jökulsárlóni og Skaftafelli. Leitaðu til okkar til að fá ábendingar um bestu leiðirnar og tímasetningarnar.

Aftur á Umi
Eftir dag á ísnum er gott að snúa aftur í ró og næði. Yljaðu þér í gufubaðinu okkar eða bókaðu einkagufubað með útsýni yfir landslagið. Bókaðu nudd, teygðu úr þér í jógasalnum og ljúktu deginum með kvöldverði á veitingastaðnum okkar sem hlotið hefur Michelin Key-viðurkenningu.
Viltu frekar rólegan dag? Fáðu lánuð hjól hjá okkur eða farðu eftir einkaveginum niður að svörtu sandfjörunni okkar.

Bókaðu ferðina og gistingu
Skoðaðu allar ferðirnar okkar og afþreyingu og bókaðu á netinu, eða leitaðu til okkar í móttökunni við komu. Bókaðu síðan dvöl þína á Umi og leyfðu Suðurströndinni að sjá um afganginn.











